sunnudagur, 8. apríl 2007

Ranghugmyndir!

Innrás í Íran
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran

Þau undur og stórmerki gerðust í síðustu viku að ég var ekki eini Íslendingurinn í Teheran. Heldur betur ekki. Þegar ég mætti á fimm stjörnu Laleh hótelið í miðri Teheran mætti mín hópur af Íslendingum. Ég verð að viðurkenna að það var hálfgert sjokk að sjá þessa innrás frá Íslandi þarna í lobbíinu. Konurnar með tuskurnar einhvern veginn bundnar á höfðinu og jafnvel spenntar niður. Ekki mjög elegant. Ómáláðar og í víðum mussum. Ég sem var búin að segja vinum mínum að íslenskar konur væru flottari en flestar í heiminum og ávallt smart í nýjustu tísku.

Það er ákveðin list að bera þessar slæður með stæl og ekki hægt að ætlast til að íslensku konurnar væru búnar að læra þá list klukkutíma eftir að þær lentu í Teheran. Það var reyndar mjög fyndið þegar við fórum út að borða um kvöldið og landar mínir sáu klæðaburðinn á persnesku dömunum. Níðþröngir jakkar rétt niður fyrir rass og háir hælar. Silkislæður látnar hanga á töglunum og lokkarnir sýnilegir við andlitið. Kafmálaðar, vel plokkaðar og varalitaðar. Á meðan íslensku konurnar voru aðeins með glæru glossin sín til að móðga engan og í víðustu fötunum sínum. Svipað og túristarnir sem koma til Íslands væru allir með lopapeysurnar og gúmmítútturnar tilbúnar til að fitta inn á Íslandi. "Þarna koma búlgörsku sveitakonurnar" sagði einhver og allir hlógu. Ríku vesturlandabúarnir klæddir eins og niðursetningar.


Þetta er auðvitað brjálæðislega fyndið en ég hálfvorkenndi íslensku konunum sem voru að reyna að finna út eftir bestu getu hvernig þær ættu að klæða sig. Tveimur mánuðum áður var ég í nákvæmlega sömu stöðu. Í farangrinum hjá þessum hópi voru einmitt nokkrir toppar sem ég hafði skilið eftir heima, pæjustígvélin mín og auka þröngar gallabuxur af því að ég hafði einmitt sjálf skilið eftir flest djammfötin mín heima, en komst svo að því að ég þurfti mest á þeim að halda.


Þetta er bara byrjunin á þeim ranghugmyndunum sem við höfum um fólk í þessum heimshluta og líf þess. Og hvaðan koma þessar ranghugmyndir? Fjölmiðlar. Við fáum flestar okkar upplýsingar þaðan. Það sem hefur tröllriðið öllum vestrænum fjölmiðlum undanfarna daga er nokkrir aumingjans breskir sjóliðar sem sigldu eitthvað vitlaust og hefur ekkert með fólkið í Íran að gera eða daglegt líf hér. En skapar samt ákveðna spennu gagnvart landinu og ýtir undir ákveðnar ranghugmyndir um hvers konar fólk býr í þessu landi.


Vestrænir fjölmiðlar ýta ekki undir ímyndina um að hér í Teheran býr háskólamenntað fólk í marmaraslegnum háhýsum í flennistórum íbúðum með gervihnattasjónvarpi og risaflatskjám, hlaupabrettum, espresso-vélum og öllum mögulegum og ómögulegum vestrænum heimilistækjum. Fólk sem klæðir sig í Dolce&Gabbana, Chanel og Prada og ekur um á glænýjum LandCruiser jeppum. Þetta er bara ein ímyndin í þessu margslungna samfélagi.


Íslendingarnir spurðu mig hvort ég yrði vör við að þessir sjóliðar hefðu skapað eitthvað ástand hér. Satt að segja hef ég ekki heyrt einn einasta Írana minnast á þessa sjóliða. Samt horfa allir á CNN og BBC og vita nákvæmlega hvað er að gerast á þessum fréttastöðum. En það er einmitt málið, þetta er það sem er að gerast á fréttastöðvunum, og hefur ekkert með það að gera sem er að gerast í landinu og í lífi þessa fólks.


Þetta eru sjónarspilin sem fréttirnar búa til og hefur ekkert með raunveruleikann að gera. Íranar hafa séð svona uppákomur og svona fréttaflutning svo oft áður og kippa sér ekkert upp við hann. Þeir vita að það sem gerist í sambandi við þessa Breta er nákvæmlega ekki neitt.


En ég get aftur á móti upplýst ykkur um það að tveimur dögum eftir að Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að auka viðskiptaþvinganir á Íran fór ég út í búð að kaupa egg. Þau voru helmingi dýrari en vikuna áður. Matarverð hefur hækkað á einni viku. Og að sjálfsögðu hefur það bein áhrif á líf fólksins hér og bitnar verst á þeim fátækustu. Ef þvinganirnar halda áfram og verðlag heldur áfram að hækka þá er það hugsanleg skelfing í uppsiglingu. Þetta eru raunverulegar áhyggjur fólksins í Íran. Ekki hver siglir í vitlausa átt í Persaflóa og hvað diplómatar og pólitíkusar annars staðar í heiminum hafa um það að segja.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Komdu sæl,
gaman að les um þessar konur var sjálf á ferð með Jóhönnu í Íran í september og sætti mig aldrei við slæðuna. Það er gaman að lesa um upplifun þína í Íran.

kveðja

Guðrún V. Bóasdóttir (gvb@hi.is

Nafnlaus sagði...

Hæ Hanna, ég var ekkert smá hissa á mjög skemmtilegan og jákvæðan hátt þegar Tóti sagði mér að lesa pistlana eftir þig frá Teheran! Það er rosalega gaman að lesa það sem þú skrifar. Þakka þér fyrir að vera þarna og gefa mér tækifæri á að fræðast meira um heim sem ég veit lítið sem ekkert um. Þessi frásögn þín og sú staðreynd að sæt ung og Íslensk stúlka í krabbamerkinu sé að kynnast öfugsnúinni og skemmtilegri þjóð í ókunnu landi, sem oftast er einmitt máluð mynd af sem hættulegu og stríðstengdu landi í fréttum. Það er gott að vita fyrir minn litla haus að í Íran er fólk eins og ég og þú, fólk sem elskar land sitt og menningu og fólk sem skemmtir sér og skreytir sig og heldur alls konar hátíðir og veislur fyrir stór og smá tilefni...svona til að krydda tilveruna.
Allavega takk fyrir það sem þú ert að gera...sjá það jákvæða í raunveruleika sem kemur oftast ansi brenglaður og einskorðaður til vita okkar hinna hér á fróni í gegnum fréttatímann.
Kær kveðja, Eva Hrönn (vinkona Baldurs og barnsmóðir nágranna þíns nr 28)

Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa pistlana þína, var sjálfur í Íran í Febrúar og fannst það stórkostleg upplifun. Landið er einstakt og fólkið einstaklega vinalegt.

Þórður

Nafnlaus sagði...

Sæl Hanna.Mikið rosalega er gaman að lesa pistlana þína, og ég er sammála því að fréttir um arabaheiminn í fjölmiðlum á við engin rétt rök að styðjast, þetta er dásamlegt fólk upp til hópa og mjög kurteist. Ég hef sjálf flogið mikið til Cairo(þegar ég var að fljúga,er flugfreyja en ekki að fljúga eins og er) og svo hef ég farið nokkrum sinnum í ferðalag til Marokkó.
Kveðja, Bjarnfríður. (fcosta077@hotmail.com)

Nafnlaus sagði...

Tek undir það með þeim sem áður hafa skrifað! Fannst ég bara verða að segja þér hversu frábærir þessi pistlar eru frá þér! Mjög þarflegt í allri umræðunni að fá að heyra um venjulegt líf í þessu landi! Takk fyrir mig.
Kveðja, Tómas