sunnudagur, 22. apríl 2007

Esfahan nesf-e jahan!

Töfrar Esfahan
Hanna Björk Valsdottir talar frá Teheran


Síðan ég kom til Íran þá hefur fólk stanslaust spurt mig hvort ég hafi farið til Esfahan. Allir virðast sammála um töfra Esfahan og að það sé ekki hægt að fara frá Íran án þess að hafa upplifað þennan gimstein persnerskrar menningar. Þannig að þegar Ali sem annars er búsettur á Íslandi hringdi í mig frá Esfahan og sagði mér að koma, stökk ég í næstu flugvél.


Þegar ég lenti í Esfahan mætti mín annað andrúmsloft en í Teheran. Fólkið er í öðrum gír og allt er mun afslappaðra. Þegar ég kom heim til bróður Ali mætti mín í dyrunum kvennager, móttökunefnd með breiðustu brosum sem ég hef séð. Dæturnar voru hver annarri fegurri og persnerskur elegans lak af þeim og móðurinni.


Þegar ég mætti var síestan að bresta á og allir að fara leggja sig. Í Esfahan er síestan í hávegum höfð, frá eitt til fjögur eru allir lamaðir. Hádegismaturinn er aðalmáltíðin og svo er lagt sig. Um kvöldið drógu stelpurnar fram hljóðfærin sín og stórfjölskyldan safnaðist saman í stofunni sem breyttist í tónlistarsal með persnerskum söng, dans og gleði.

Esfahan er frægt fyrir íslamskan arkitektúr og óendanlega fallegar moskur og hallir, þar fær maður svo sannarlega tilfinningu fyrir því hversu mikið heimsveldi Persía var. Á Safavid tímabilinu blómstraði persnersk list og arkitektúr og á þeim tíma varð Esfahan höfuðborg þriðja heimsveldis Persíu og blómstraði í valdatíð Shah Abbas (1587 - 1629). Evrópubúar höfðu aldrei séð aðrar eins hallir, moskur og garða og Esfahan fékk viðurnefnið "Esfahan nesf-e jahan" sem þýðir "Esfahan er hálfur heimurinn." Það er auðvelt að sjá hvaðan sú speki hefur komið.


Imam moskan og Imam torgið er eitt það fegursta sem ég hef séð í heiminum og fer á listann með Taj Mahal. Ég varð orðlaus yfir öllu bláa mósaíkinu og skreytingunum á öllum veggjum og loftum. Hvert sem maður lítur eru byggingar listaverk og andrúmsloftið töfrandi. Við endan á torginu settumst við út á tehús á annarri hæð og sátum þar dágóða stund bara til að meðtaka það sem fyrir augum bar. Ótrúleg töfrandi fegurð og auðvelt að ýminda sér að vera staddur í prinsessuævintýri í 1001 nótt.


Það er endalaust hægt að skoða í Esfahan, tínast á markaðnum innan um skartgripi og skrautmuni, ganga um garðana og brýnnar og hanga á tehúsum. Öll borgin er eins og eitt stórt safn. En það er samt alltaf magnaðast er að vera inn á þessum fjölskyldum. Og af því að Ali var í heimsókn safnaðist stórfjölskyldan alls staðar saman. Og alls staðar var mér tekið með opnum örmum, gestur gestsins er mikilvægari en gesturinn. Fjölskyldan hafði meiri áhyggjur af því að ég borðaði nóg heldur en Ali.


Hvar annars staðar en í Íran getur maður borðað yfir sig af geðveikum heimagerðum mat og þegar maður segir takk fyrir matinn, er svarað takk fyrir að borða matinn okkar. Svo leggst maður afvelta útaf á persnersku teppi á stofugólfinu og rotast af ofáti og þá kemur húsmóðirin með teppi og breiðir yfir mann, og maður leggur sig með ömmunni.


Á kvöldin rýmir fjölskyldan til í stofunni og dýnum, teppum og koddum er rúllað út í beina röð og búið til pulsuverksmiðju fyrir gestina eins og Ali kallaði það. Þar liggja þau í einni röð og sofa eins og pulsur á færibandi. Svo ótrúlega kósí. Í Íran veit maður aldrei hjá hvaða fjölskyldu maður endar með að gista og því betra að hafa alltaf tannburstann í töskunni.


Það sem er mest sjarmerandi við þetta fjölskyldulíf er hversu sjálfum sér nóg þau eru. Það þarf engin tilbúin skemmtiatriði, þau skemmta hvort öðru. Konurnar sameinuðust í eldhúsinu og uppvaskið breytist í söng og dans, trúnó og hlátur. Dansspor eru stigin inn á milli við tónlistina sem ómar alls staðar í bakgrunninum og frænkurnar voru æstar í að kenna mér þennan tælandi persnerska dans. Seiðandi augnaráðið með tilheyrandi mjaðma- og fíngrahreyfingum er nóg til að dáleiða flesta.


Þegar ég kvaddi Esfahan seint um kvöld, þá var það gestrisnin og hlýjan frá fjölskyldu Ali sem skein alls staðar í gegn sem stóð upp úr ferðinni. Það er alltaf hægt að koma og skoða moskurnar, hallirnar, brýnnar og garðana, en að vera ein af fjölskyldunni í nokkra daga er ómetanlegt. Sannir töfrar Esfahan felast í fólkinu.

Engin ummæli: