þriðjudagur, 17. apríl 2007

Gleðilega páska

Nætursöngur hermanna
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran


Ég átti ekki von á því að geta haldið páskana hátíðlega í íslamska lýðveldinu Íran. En eins og flest annað sem ég hafði gert mér í hugarlund áður um þetta land þá hafði ég rangt fyrir mér. Í Teheran býr stór hópur fólks af armensku bergi brotnu og þetta fólk er kristið. Það vill svo skemmtilega til að ein gömul nágrannakona mín er frá Armeníu. Hún er eins konar amma mín hér í Teheran, bakar kökur, gefur mér tyrkneskt kaffi og spáir í bolla fyrir mér. Hún talar auðvitað enga ensku en það er allt í lagi. Dótturdóttur hennar er oft hjá henni og túlkar. Ég hef hálfpartinn verið ættleidd af hennar armensku stórfjölskyldu og að sjálfsögðu var ég með í öllum páskahátíðarhöldum.


Fyrir páskamáltíðina var drukkið sérrí með oblátu útí og farið með bæn. Páskaeggin voru máluð og páskaskraut hengt á greinar. Á páskadag fór ég í kirkju og talaði við Guð. Armenar eiga nokkrar kirkjur í Teheran og aðalkirkjan var eins félagsmiðstöð, þar var troðið útúr dyrum og unga fólkið aðallega komið til að hitta hvort annað. Fyrir innan hliðið á kirkjunni eru engar slæður nauðsynlegar og þar getur þessi þjóðfélagshópur haldið sínum hefðum í friði. Armenar eiga líka "social" klúbb í Teheran sem er undanskilinn íslamska "dresskódinu". Það er ýmislegt sem fer fram fyrir luktum dyrum í Íran.


Þannig eru það mismunandi hópar sem skapa mismunandi senur í þessari borg. Og bilið milli þessara hópa getur verið ansi breitt. Þannig er ég orðin vön því að sjá löggur og hermenn úti um alla borg. Komandi frá friðsæla Íslandi fannst mér það hálf skrítið í fyrstu. Sérstaklega ungu strákana í græna hermannagallanum, klossunum og með rifflana í fanginu. Í Teheran standa hermenn vörðinn allan sólarhringinn. Úti um allar götur eru litlir klefar eins og lokaðir símaklefar þar sem þessir strákar sitja dag og nótt.


Ég hef nokkrum sinnum þurft að fara á lögreglustöðina hér til að framlengja pappírana mína. Þá þarf ég að fara í gegnum hóp af þessum hermönnum, það er leitað á mér og eldri kona í chador lagar til höfuðklútinn á mér svo hann samræmist íslömsku reglunum og svo brosir hún blíðlega til mín. Skriffinnskan er ógurleg og þessir menn eru ekki allir jafn hressir með vinnuna sína. En fyrir hvern einstakling sem hreytir einhverju í mig á persnesku og nennir ekki að aðstoða mig eru nokkrir englar sem birtast til að hjálpa mér. Þannig á ég núna tvo vini á lögreglustöðinni, fyrir utan gömlu konuna í chadornum, sem brosa alltaf þegar þeir sjá mig og benda mér á að koma til þeirra fram fyrir röðina og gefa mér svo appelsínu meðan þeir stimpla pappírana mína.


Í gærkvöldi fór ég í partí hjá starfsfólki franska sendiráðsins í Teheran. Þar var aftur ein önnur sena í gangi. Sendiráðið er vandlega afgirt með háum steinvegg og inngangurinn vígalegt málmhlið með tilheyrandi hlerum. Fyrir utan hliðið standa hermenn vörðinn allan sólarhringinn.


Fyrir innan hliðið mátti heyra evrópsk ungmenni tala frönsku, þýsku, ensku og persnesku meðal Írana. Sendiráðsfólk heldur víst hópinn. Þessi partísena hefði getað átt sér stað hvar sem er í Evrópu, sami fatnaður, tónlist, veitingar og að sjálfsögðu áfengi þó það sé stranglega bannað í íslamska lýðveldinu.


Þegar við biðum um miðja nótt fyrir innan hliðið eftir leigubílnum til að keyra okkur heim kíkti ég út um lítið gægjugat. Gatan var algjörlega auð og allt með kyrrum kjörum. Nema þarna voru hermennirnir tveir. Skyndilega vorkenndi ég þeim að þurfa að halda sér vakandi um miðja nótt og allt í einu varð mér hugsað til þess hvaðan þessir strákar kæmu. Hugsanlega úr litlu fjallaþorpi einhvers staðar í afdölum Íran og hafa aldrei áður séð lífið í stórborginni, hvað þá evrópsk ungmenni skemmta sér með tilheyrandi partílátum sem ómuðu um sendiráðsgarðinn sem þeir stóðu vörð um.

Annar þeirra sá mig gægjast í gegnum lúguna og byrjaði að syngja. Vinur hans tók undir. Þarna stóðu þeir tveir hermenn útí nóttinni og sungu persneska söngva með undurfögrum röddum. Eitt það fallegasta sem ég hef upplifað á ævinni. Stundum gleymir maður manneskjunni á bak við búninginn. Þar er manneskja sem á sér líf, væntingar og vonir, fjölskyldu, fortíð og framtíð. Rétt eins og við öll hin.

Engin ummæli: