mánudagur, 5. mars 2007

út í sveit!

Sveitasæla í Íran
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran


Ég er stödd núna í Norður-Íran í litlum bæ sem heitir Ghaemshar við Kaspíahafið. Hann er svo lítill að ég finn hann ekki á landakorti og Lonely Planet bókin min hefur ekkert um hann að segja. Næsta þorp er Sari sem Lonely Planet upplýsir að rúmlega 200.000 manns búi í. Sem sagt algjört krummaskuð og sveit. En fólksfjöldinn nær samt hátt í íslenska fólksfjöldann, það er alltaf fyndið.

Ég er hér með Khenar vinkonu minni, fátækri og saklausri sveitastúlku sem býr núna í Teheran. Hún var æst í að sýna mér sveitina sína þannig að í gærmorgun var mér skellt upp í rútu og ekið af stað. Rútuferðir á þessum slóðum hafa alltaf sinn sjarma. Frábært útsýni og fjallasýn í gegnum Alborz-fjöllin, fimm tíma hoss og írönsk tónlist blöstuð alla leiðina, mjög hresst.

Við gistum hjá systur Khenar og fjölskyldu. Þau eiga átta ára stelpu sem talar stanslaust við mig á persnesku og er alveg sama þótt ég skilji ekki orð, og átján mánaða strák sem heimtar að ég haldi á honum og dansi öllum stundum. Það er eiginlega sama á hvaða heimili maður kemur það líður aldrei langur tími áður en tónlistin er blöstuð og stofan breytist í dansgólf. Írönsk tónlist er mjög hress og íranskur dans er vægast sagt mjög hress.

Fjölskyldan sem ég bý hjá er fátækt sveitafólk. Húsið sem hún býr í er í hálfgerðri útilegu stemningu. Ég hef það á tilfinningunni að ef ég myndi halla mér hressilega upp að einum veggnum þá myndi húsið detta á hliðina. En fjölskyldan brosir bara breiðar í staðinn og afsakar fátæktina. Klósettið er útikamar við hliðina á hænsnakofanum þannig að hænan gaggar í eyrað á mér á meðan ég pissa. Vaskurinn er fyrir utan þannig að í gær burstaði ég tennurnar undir berum himni undir fullu tungli.

Í kringum húsið er garður þar sem húsmóðirin ræktar ýmsar matjurtir. Hún bregður sér til dæmis út í garð með skál og kemur með hana fulla af appelsínum og eplum til baka. Í Íran er appelsínuát nánast trúarbrögð. Appelsínur vaxa á trjánum út um allt og það er skylda að borða appelsínu eftir hverja máltíð. Appelsínurnar hérna eru reyndar ekki eðlilega góðar.

Það sama á eiginlega við um allan mat í Íran, hér ríkir mikil matarmenning. Í sveitinni, sem er eins og að skreppa aftur í tímann, sér húsmóðirin um að alltaf sé matur á borðum og maður hefur varla undan við að borða. Í hádeginu loka allar verslanir og skrifstofur í þrjá tíma og fjölskyldan kemur heim og borðar saman.

Í dag fór ég á markaðinn í þessu litla þorpi. Markaðir í þessum heimshluta eru alltaf mjög líflegir og troðnir af fólki, sölumönnum sem gala og góla og keppast hver við annan, mjög mikið að gerast. Stærsti hlutinn hérna var matar- og grænmetismarkaður. Allt var ótrúlega ferskt og fallegt, beint af ökrunum. Í gær fékk ég til dæmis heimagerða jógúrt beint úr beljunni.

Andstæðurnar í þessu landi eru svo miklar og ég er að kynnast öllum skalanum. Núna er ég úti í sveit með þessu fátæka, góða fólki en fyrir þremur dögum var ég i brjáluðu partíi með skuggalega ríku liði í Teheran. Ekki bara "jet set Teheran" heldur "jet set Middle-East". Þarna var fólk fra Sádi-Arabíu, Dubaí og Teheran sem talar um peninga sem ég skil ekki einu sinni. Olíupeningar og bissness. Einkaflugvélar, partí, geðveikar íbúðir, einkabílstjórar, verslunarferðir og allt í boði. Ekkert skiptir máli. Þetta fólk lifir mjög hátt og mjög hratt, og einkennir Mið-Austurlönd jafn mikið og fátæka sveitafólkið. Öfgarnar eru svo miklar.

Þetta viðskiptalið er mjög alþjóðlegt og heimurinn er leikvöllur þess. Þess vegna er ekki skrítið að Dubaí hafi orðið svona mikil miðstöð viðskipta, þar sem Vesturlandabúar geta komið og stundað viðskipti við þessa miðausturlensku vini mína. Þessi hlið af Mið-Austurlöndum er mjög sterk og stundum minnir Teheran á New York, þó að í rauninni sé ekki hægt að líkja lífinu hér við aðra staði í heiminum.

Á markaðnum í dag fann ég aftur fyrir því hvað þetta sveitafólk er fátækt. Margir vildu ekki að ég tæki myndir af þeim vegna þess að þeir skammast sín fyrir fátæktina. Einu kaupin sem ég gerði var nýr trefill til að hylja hárið sem kostaði 30.000 rials sem eru um þrír dollarar. Strákurinn kom hlaupandi á eftir mér til að láta mig fá 10.000 rials til baka og brosti svo fallega. Hann vildi endilega selja mér trefilinn ódýrara. Hann er líklega bláfátækur og ég þarf ekkert á þessum dollara að halda en það voru ekki peningarnir sem skiptu máli heldur hugsunin. Og svo brosti hann hringinn.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hi Hanna mín, gaman að lesa bloggið þitt. Og gaman að fá að fylgjast með þér og sjá hve hlutirnir geta vera eins en samt örðuvísi. Hafðu það gott
Kveðja Hulda vinkona

Nafnlaus sagði...

Hæ.

Las pistilinn frá þér í Fréttablaðinu í dag. Þótti hann það áhugaverður að ég fór inn á bloggið þitt og las alla pistlana. Mjög vel skrifað og frásögnin er skemmtilega myndræn.

Hafðu það gott áfram í Teheran og haltu áfram að skrifa pistla :)

JGS