þriðjudagur, 27. febrúar 2007

Haldið í höndina á mér!

Leidd um götur borgarinnar
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran


Fresturinn sem Bandaríkin gáfu Írönum til að hætta kjarnorkuframleiðslu er liðinn en hér er ég ennþá, les fréttir á netinu, segi fólki og þau hlæja. Hér er enginn að spá í pólitískan fréttaleik Vesturlanda.


Þegar ég sé fréttamyndir á CNN frá Teheran finnst mér eins og ég sé að horfa á bíó. Sömu myndirnar af öskrandi mönnum í einhverjum mótmælum, kannski 1% af þjóðinni. Þetta eru myndirnar sem Vesturlönd fá að sjá. Raunveruleikinn hér á götum borgarinnar er allt annar.


Ég hef heyrt fólk segja að helsta vandamál Íran sé landafræði. Íran fæddist á vitlausum stað á landakortinu. Það er ekki hægt að líkja Íran við nágrannalöndin Írak eða Afganistan. Teheran er reyndar engin venjuleg borg og andstæðurnar miklar, hér er bæði fólk sem er jafnvel vestrænna en ég sjálf og fólk sem les kóraninn.


En það sem helst einkennir Íran er fólkið. Hvergi hef ég hitt fólk sem er jafn hjálpsamt, vingjarnlegt og gestrisið. Það þarf ákveðna sjálfsbjargarviðleitni til að lifa af í þessari borg og Teheran er ekki endilega auðveldasta borgin til að ferðast til einn. Hún er mjög óútreiknanleg en fyrir þá sem hafa gaman af því að týnast í stórborgum þá er Teheran staðurinn.


Leigubílakerfið hérna er til dæmis mjög sniðugt ef maður veit hvað maður er að gera en mjög flókið þegar maður er algjörlega týndur. Hver sem er getur verið leigubíll þannig að maður stendur á götuhorni og galar inn um bílrúðuna nafnið á götunni sem maður er að fara á. Ef bíllinn er á þeirri leið þá hoppar maður inn og það er algengt að bíllinn fyllist á leiðinni þannig að maður er alltaf í bíl með ókunnugum og oft eru farþegarnir fleiri en sætin gera ráð fyrir.

Bílferð í Tehran getur verið ágætis rússibanaferð. Hér er mjög þétt, brjáluð traffík og bílstjórarnir reyna stöðugt að finna leið til að komast aðeins hraðar. Umferðareglur eru af skornum skammti og akreinar ekki til að hafa áhyggjur af. Hringtorg eru algeng en það sem væri kannski fimm akgreina hringtorg annars staðar er ein stór kaós í Teheran. Bílarnir eru líka flestir eldgamlir og vel beyglaðir á alla kanta.

Til að komast yfir götu, sem flestar eru með nokkrum akgreinum í báðar áttir og stöðugri umferð, þarf einfaldlega að demba sér af stað og vona að bílarnir hægi á sér. Það er mikil list að velja rétta augnablikið og núna æði ég af stað eins og ekkert sé sjálfsagðra. Oft er reyndar gripið í höndina á mér og ég leidd yfir götur. Þannig er fólkið í Íran, alltaf að passa mig.


Ég gleymi aldrei konunni sem ég spurði til vegar einn daginn, hún skildi enga ensku og gat ekkert talað við mig. Hún skildi hins vegar hvert ég var að fara, tók í höndina á mér og leiddi mig af stað. Þegar ég reyndi að segja henni að ég myndi koma mér á leiðarenda sjálf hlustaði hún ekki. Næsta sem ég vissi sátum við tvær í leigubíl. Klukkutíma og tveimur leigubílaferðum síðar, sem ég mátti alls ekki borga fyrir, var hún ennþá með mér og skildi ekki við mig fyrr en ég var komin heim.


Ég gleymi heldur aldrei þegar ég var að spóka mig um í verslunarmiðstöð í ofur fínu hverfi með ofur fínum búðum. Í einni búðinni þar sem viðskiptavinirnir voru uppteknir við að skoða og máta Prada og Dolce&Gabbana, tók verslunareigandinn rándýra tösku úr einni hillunni, setti í poka og rétti mér. Ég skildi ekki hvað var að gerast og neitaði að taka við henni. Hann sagði mér að þegar ég færi heim þá vildi hann að ég ætti þessa minningu frá Íran, að ég gæti labbað inn í búð og labbað út með gjöf. Og svo marg þakkaði hann mér fyrir að koma til Íran.

Núna sit ég hér með forláta bleika tösku þakkta bleikum gimsteinum sem ég mun líklega aldrei nota en með minningu um fólkið í Íran sem ég mun aldrei gleyma.

Þegar ég hitti fólk hér er mér oftar en ekki þakkað fyrir að heimsækja Íran. En eftir þessa heimsókn á ég svo margt að þakka þessu fólki, ekki hvað síst fyrir að breyta því hvernig ég hugsa um heiminn, fólk, stríð og frið.


Engin ummæli: