sunnudagur, 11. febrúar 2007

Deitmenning

Stefnumót við Íran
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran

Ég er búin að vera í viku núna í Teheran og búin að læra ýmsar mismunandi leiðir til að vera "smart" með trefil eða slæðu á höfðinu. Ég á samt enn þá í mestu vandræðum með að láta hann haldast klukkutímum saman. Trikkið hjá þessum stelpum er að sýna sem mest af hári en láta trefilinn/slæðuna samt tolla á höfðinu. Það er mjög mikil list.
Fyrst reglurnar eru á annað borð þannig að síddin á jakkanum þarf að ná niður fyrir rass þá hafa þær hann eins þröngan og þær mögulega geta í staðinn. Sumir jakkarnir eru svo þröngir að þeir minna á korselett. Þær eru allar í gallabuxum og stígvélum eða háhæluðum skóm við. Íranskar stelpur hugsa líka mikið um útlitið og eru mjög vel til hafðar. Þær eru kafmálaðar með stór sólgleraugu, helst með einhverju merki eins og Chanel, Prada eða D&G og tösku í stíl. Sem sagt er ég eins og mesta lumma í kringum þessar ofurgellur. Flestar ef ekki allar hata þetta "dress code" sem þær búa við og reyna að ögra því eins og þær geta.


Það er ekki einfalt að vera ungur í Teheran. Því fékk ég að kynnast þegar ég eyddi frídegi með tveimur 25 ára háskólastelpum. Félagslíf og samskipti kynjanna eru af mjög skornum skammti. Áfengi og tónlist er bönnuð. Barir og klúbbar eru að sjálfsögðu út úr myndinni. Tónlistin á iPod-inum mínum er öll ólögleg þannig að ég gæti verið handtekin fyrir að vera með hana í eyrunum. En samt hlusta þessir krakkar á sömu tónlistina, það er allt í boði á svarta markaðnum.

Almenningsgarðar, veitingastaðir og bíó eru einu staðirnir sem unga fólkið getur hist á, og svo hin geysivinsælu kaffihús eða tehús réttara sagt sem bjóða líka upp á vatnspípur, sem er jú löglegt. Eftir klukkan 10 á kvöldin er allt lokað. Heimahús eru því eini staðurinn þar sem unga fólkið getur verið það sjálft og gert það sem jafnaldrar þess annars staðar í heiminum gera. Það kemur samt fyrir að löggan mætir í partí og þá eru allir handteknir. Það eitt að stelpur og strákar séu saman í bíl getur verið ástæða fyrir handtöku.

Úti um allt er það sem Íranar kalla "diplomatic police" sem er eins konar siðgæðislögregla. Reyndar er ekkert "diplomatic" við hana frekar en neitt annað í Íran.

En hvernig drepur þá unga kynslóðin tímann? Jú, á rúntinum. Þar keyra stelpur og strákar fram og til baka og brosa til þeirra sem þeim líst á, stundum er skrúfuð niður rúðan og skipst á símanúmerum. Stundum keyra strákarnir alveg upp að bílnum og kalla svo "eltið okkur". Annarri eins samskiptatækni hef ég ekki orðið vitni að áður. Ef eltingarleikurinn hefst þá er farið í garðana eða á tehús.

Möguleikarnir á að kynnast einhverjum nýjum eru mjög litlir og þess vegna þarf að bregðast við strax. Það er því ekki skrítið að Teheran sé mengaðasta borg í heimi þar sem rúnturinn er eitt af því fáa sem er leyfilegt og unga kynslóðin hringsólar um borgina á mengunarspúandi bílunum sínum talandi í GSM-símann. Hér er ekki verið að spara bensínið og Íranar eyða olíu eins og Íslendingar drekka vatn.

Í gærkvöldi fór ég lengst upp í fjallshlíð í Norðaustur-Teheran þar sem við fundum tehús með vatnspípum og útsýni yfir alla borgina. Inni á staðnum sat unga kynslóðin á básum með krosslagða fætur á persneskum teppum og drakk te og reykti vatnspípur með mismunandi bragðtegundum, meðan hún horfði á stórborgarljós Teheran undir fullu tungli. Þetta er svo sannarlega mögnuð borg.


Engin ummæli: