Af hverju er ég hér?
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran.
Ég sit í fancy smancy íbúðinni minni í Teheran og horfi á fréttir, á stærsta risaskjá sem ég hef séð, um að Bandaríkin og Bretar hafi verið að senda sprengjuvélar til Suður-Íran. Og ég sem er bara búin að vera hérna í tvo daga. Gátu þeir ekki beðið aðeins. Einhvern veginn hef ég samt engar áhyggjur af því að stríð brjótist hér út. Ekki frekar en hver annar í Teheran.
Fólk heima spurði mig hvað ég væri að pæla að ætla til Íran. Ég veit ekki af hverju en ég vissi bara að ég yrði að fara. Ég er smám saman að reyna að skilja hvernig lífið er hérna. Teheran er brjáluð borg. 14 milljónir búa hér og lifa algjörlega tvöföldu lífi. Annars vegar er Teheran á yfirborðinu og hins vegar Teheran undir yfirborðinu, eða það sem þeir kalla "black Tehran" og vísar til alls þess sem er ólöglegt í Íran og er verslað með á svarta markaðnum. Fólkið og ríkisstjórnin er tvennt ólíkt. Ég hef engan hitt sem styður forsetann og flestir gera grín að honum. Íran er á suðupunkti núna og pólitískt ástand mjög viðkvæmt, bæði innan Íran og utan.
Í dag fór ég að hitta Niki, einu írönsku konuna sem ég þekkti áður en ég kom til Teheran. Hún er ein frægasta leikkonan í Íran og er að leika í mjög "commercial" mynd núna eftir einn vinsælasta leikstjóra Íran. Soldið eins og íranska Hollywood en samt allt öðruvísi. Það var mjög fyndið að fylgjast með dramatískri íranskri ástarsögu verða til og í útiskotunum flykktist fólk á staðinn og heilu fjölskyldurnar mættu til að fylgjast með. Milli atriða kom fólk að heilsa Niki og láta taka myndir af sér með henni.
Þegar ég mætti á settið sprakk Niki úr hlátri og sagði, "Guð minn góður, Hanna hvað kom fyrir þig, þú ert nákvæmlega eins og írönsk kona." Eina sem var öðruvísi var að trefillinn sem ég er vanalega með um hálsinn var núna vafinn yfir hausinn á mér og huldi hárið. Annars var ég í svarta millisíða H&M jakkanum mínum, gallabuxum og stígvélunum. Nákvæmlega eins og heima. En gæti samt verið "uniform" fyrir íranska stelpu.
Niki sagði mér að hafa ekki áhyggjur, ég gæti tekið af mér slæðuna þó að settið væri fullt af fólki. Þannig er lífið í Teheran algjörlega tvöfalt. Maður vefur slæðu um hausinn þegar maður fer út og fer í jakka sem nær niður fyrir rass en annars eru stelpurnar algjörlega vestrænt klæddar. Niki var mjög glöð að sjá mig og gestrisnin og kurteisin skín alls staðar í gegn. Íranir eru súper næs, annað verður ekki sagt. Það er stanslaust borið í mann te, hnetur, þurrkaðir ávextir og súkkulaði. Pístasíur og appelsínur eru á öllum borðum. Fólk rembist við að tala ensku og allir vilja allt fyrir mann gera.
Eftir tökur fórum við heim til Niki og hún býr eins vel og aðrir Íranir sem ég hef komið heim til. Inni á heimilunum gæti maður haldið að maður væri staddur í hvaða stórborg sem er. Það fyrsta sem manni er boðið er víski eða vodka. Annars er áfengi ólöglegt eins og allt annað en það stoppar engann. Áfengi er selt á svarta markaðnum, rétt eins og DVD-diskar með Hollywood-bíómyndum sem eru að sjálfsögðu bannaðar og geisladiskar með allra nýjustu tónlistinni. Þetta er "underground" Teheran.
Gervihnattasjónvarp er líka bannað en samt sem áður eru öll heimili með gervihnetti með endalausum stöðvum. MTV er mjög vinsælt og persneskar tónlistarstöðvar rembast við herma eftir MTV með íranskri tónlist. Soldið eins og Bollywood. Öðru hvoru ruglast samt útsendingin og þannig reynir stjórnin að koma í veg fyrir að fólk sé að horfa á aðrar stöðvar en hún samþykkir. Þannig ruglast til dæmis BBC World alltaf rétt áður en fréttir byrja. Klerkarnir reyna að stjórna hvaða fréttir fólk fær utan úr heimi enda hefur enginn áhyggjur af því hvað Bush og félagar eru að spá og lífið gengur sinn vanagang í Teheran rétt eins og New York, London eða Reykjavík.
miðvikudagur, 31. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli