Áttundi pistillinn birtist í Fréttablaðinu 17. mars 2007
Ananasgos og bananatyggjó!
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran
Þegar maður dvelur í útlöndum í lengri tíma þá fer maður alltaf að sakna fáránlegra hluta frá Íslandi eins og til dæmis SS-pylsna og ópals. En mér finnst reyndar ennþá skemmtilegra að vera í útlöndum og smakka mat sem mér finnst skrítinn. Í Íran er mikil matarmenning og ég hef verið mjög dugleg við að smakka allan mat sem mér er boðinn og yfirleitt er hann mjög góður, þótt Íranar séu óþarflega mikið fyrir að hafa súrsað grænmeti sem meðlæti. Kebab er aðalmálið og núna hef ég prófað trilljón útfærslur af þessum þjóðarrétti. Kebab er líka alltaf borið fram með miklu magni af saffran-hrísgrjónum sem eru mjög svo góð. Og jógúrt, hér er skylda að borða hreina jógúrt með öllum mat.
En í dag fann ég skemmtilega skrítinn drykk. Rani, sem er íranskur ananasgosdrykkur með ananasbitum. Það var skemmtilega hressandi. Bananatyggjó er líka mjög vinsælt hérna og aðaltyggjóbragðið. Mér finnst alltaf mjög fyndið að fá bananatyggjó. Íranar eru líka mikið fyrir ís og ísbúðir eru á hverju götuhorni. Grænn og bleikur ís í brauðformi með óskilgreindu bragði er langvinsælastur hér og það er ekki hægt að labba úti á götu án þess að mæta einhverjum með þannig ís.
Þannig finnst mér það skemmtilegasta við það að vera í nýrri borg, sem er svo gjörsamlega frábrugðin öllu sem ég hef kynnst, að ganga um göturnar og upplifa allt sem er nýtt og öðruvísi en ég á að venjast. Sem er reyndar allt í Teheran, ekkert er venjulegt hér.
Það er líka ýmislegt annað sem er frábrugðið í menningunni. Hér eru að bresta á áramót. Nýja árið byrjar 21. mars sem er fyrsti dagur vorsins. Nýja árið kemur sem sagt með vorinu. Og með tilheyrandi hátíðahöldum. Til að fagna nýja árinu þurfa Íranar tveggja vikna frí og allt er lokað í að minnsta kosti viku.
Síðan ég kom hingað hef ég upplifað alls konar frídaga, aðallega trúarlega en Íranar eru duglegir að taka sér frí við minnsta tækifæri.En nýja árið er stærsta hátíð ársins. Þess vegna er verslunaræði í gangi núna, svipað og fyrir jólin heima. Og alls staðar kaos af fólki og mikil traffík. Fólk reynir í æsingi að finna sér ný föt og gjafir handa vinum og vandamönnum.Það eru miklar hefðir í kringum öll hátíðarhöld í Íran.
Í síðustu viku var til dæmis haldið upp á síðasta miðvikudag ársins. Það var reyndar gert á þriðjudagskvöld og þá breyttist Teheran í allsherjar partístað þar sem fólk kom saman og kveikti elda úti á götu til að stökkva yfir. Meðan ég keyrði í gegnum borgina á leið í partí sá ég lítil bál úti um allar götur. Eldurinn táknar nýja byrjun og meðan þeir stökkva yfir eldinn biðja Íranar um góða heilsu fyrir nýja árið.Á þessu kvöldi er líka flugeldum og ýlum skotið á loft. Flugeldarnir voru reyndar hálfaumingjalegir en strákarnir bættu það upp með litlum sprengjum sem þeir köstuðu út um allt. Og svo var dansað frameftir nóttu.
Í næstu viku þegar nýja árið brestur á er siður að finna til sjö hluti sem byrja á s og setja á fallegt borð sem er látið standa óhreyft í viku. Síðan heimsækir fólk ættingja sína og er algengt að það ferðist til að heimsækja þá sem búa lengra í burtu. Þannig mun Teheran tæmast um áramótin sjálf, svipað eins og um verslunarmannahelgina heima. Þetta er mesta frí- og ferðavika ársins. Ég ætla reyndar að vera í Teheran og sjá hvort það sé satt að þessi borg geti virkilega róast.
Ég hef aldrei upplifað annað en kaos og læti úti á götu frá morgni til kvölds þannig að ég er mjög spennt að sjá hana leggjast í dvala. Teheran-búar fara nefnilega mjög snemma á fætur og það eru alltaf allir í fullu fjöri löngu áður en ég vakna. Einn daginn keyrði ég í gegnum borgina klukkan sjö um morgun og alls staðar var fólk úti á götu með ferskt brauð undir handleggnum. Borgarbúar fara snemma á fætur vegna þess að hluti þeirra vaknar klukkan fimm á morgnana við fyrsta bænakall til að tala við guð. Það er líklega ágætis hugleiðsla og góð byrjun á deginum.
Gleðilegt nýtt ár!
föstudagur, 23. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli