laugardagur, 5. maí 2007

Stórborgarlíf!

Í landi nefaðgerða
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran

Frá því ég kom til Íran í janúar hefur verið stöðugur fréttaflutningur frá landinu. Kastljósinu var reyndar beint hingað nokkru áður þannig að fólk á Íslandi hélt að ég væri brjáluð að ætla til Íran. Þannig átti ég von á að ég myndi þurfa koma mér í burtu ef stríð myndi skyndilega brjótast hér út. Núna finnst mér það brandari og reyni að forðast fréttamaskínuna sem matar Vesturlönd af ranghugmyndum um land og þjóð.


Þegar ég kom hingað var Bush að auka heraflann í Persaflóa. En ekkert hefur gerst. Síðan var það 21. febrúar, dagsetningin sem Íran var gefin til að hætta kjarnorkuframleiðslu. Miklu púðri var eytt í að skapa óvissuástand en þessi dagur kom og fór og ekkert gerðist. Þá hætti ég að fylgjast með fréttum. Breska sjóliðamálið náði síðan hæstu hæðum þegar Faye Turner fór að birtast á sjónvarpsskjáum um allan heim með slæðu á höfðinu til að auka áhrifin á áhrifaríkri frásögn meðan fólk annars staðar í heiminum hélt niðrí sér andanum, en Íranar hristu höfuðið. Íranar eru ekkert að spá í þessa hluti. Þeir eru uppteknir við allt annað. Nefnilega daglegt líf.

Það er merkilegt hvernig fjölmiðlar og stjórnvöld á Vesturlöndum geta skapað hræðsluástand í kringum eitt land. Bush og Blair vilja að við séum hrædd við Íran. Af hverju er ekki alveg á hreinu en þeir munu halda áfram að finna nýjar ástæður. Einhver þarf að vera óvinurinn. Áður voru það Sovíetríkin, Slobodan Milosevic og Saddam Hussein. Fyrst Saddam er fallinn þarf nýjan óvin.

En það er undarlegt að velja vestrænasta landið í öllum Mið-Austurlöndunum. Einn algengasti misskilningurinn á Vesturlöndum er að Íranar séu Arabar. Íranar eru nefnilega Persar sem er allt annar kynstofn. Einhvern veginn slysaðist Íran til fæðast inn á milli Arabalanda. Meðan nágrannaþjóðirnar eru allar af arabískum uppruna og tala arabísk tungumál tala Íranar persnesku og siðmenningin sem hér blómstraði fyrir þúsunum ára á miklu meira skylt við Evrópu. Íran á ekki heima í Arabíu, hvorki menningarlega né trúarlega.

Ungt fólk í Íran dreymir um að komast til Vesturlanda. Vestræn menning er hafin upp til skýjanna. Hér er MTV blastað allan sólarhringinn, gervihnattasjónvarpið er alltaf í gangi. Aðalhetjurnar eru Christina Aguilera, Shakira og Beyonce. Það sem við myndum kalla vestrænt poppmenningarrusl er það eina sem krakkarnir vilja. Hollywood-myndir og poppstjörnur. Nefaðgerðir eru algengari hér en í Hollywood og stelpurnar bera umbúðirnar með stolti. Sumar halda eftir plástrinum á nefinu til að sýna fram á að þær hafi látið laga á sér nefið. Það er ákveðið stöðutákn.

Ég er alltaf að kynnast fleira og fleira fólki sem menntaði sig í Evrópu eða Bandaríkjunum og var í burtu í tíu til tuttugu ár áður en það flutti aftur til Teheran. Flest hafa þau svipaða sögu að segja; þau komu í heimsókn en enduðu með að setjast að. Ástæðan einfaldlega að það var of gaman í Teheran. Þrátt fyrir stjórnmálaástand og slæður eru þau miklu ánægðari með lífið hér heldur en í London, París, New York eða Toronto. Teheran er nefnilega alveg frábær borg til að búa í. Þótt nánast allt sé bannað þá er allt í boði. Það er hægt að redda öllu með einu símtali. Partíin eru skemmtilegri og fólkið er frábært.

Í gær sat ég uppi á þaki hjá Marco vini mínum í sól og blíðu og drakk rauðvín með nokkrum öðrum vinum sem allir höfðu flutt til Teheran á síðustu fimm árum eftir að dveljast erlendis nánast allt sitt líf. Marco er arkitekt sem ólst að mestu leyti upp í París og London en kom til Teheran fyrir fimm árum til að teikna og byggja hús fyrir mömmu sína og hefur ekki farið úr landi síðan. Hann vissi það um leið og hann kom aftur að hann myndi setjast að.

Og þar sem við sátum uppi á þaki á húsinu sem hann byggði og horfðum á ótrúlega náttúrufegurð Alborz-fjallanna annars vegar og yfir stórborgina Teheran hins vegar fattaði ég hversu frábærlega heppin ég var að hafa slysast til að flytja hingað. Teheran er stórborg þar sem lífið er eins fjölbreytt og hugsast getur, borgin er svo allt öðruvísi en ég átti von á og heldur sífellt áfram að koma á óvart.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir frábæra pistla um lífið í Íran!! Ég hlakka alltaf til að lesa það sem þú skrifar og finnst þú leggja mikið af mörkum til að eyða ranghugmyndum um lífið þarna. Ég sjálf var full af þessum ranghugmyndum og gleðst yfir því að sjá hversu rangar þær voru. Ég bíð spennt eftir næsta pistli :-)

Nafnlaus sagði...

Sæl Hanna Björk!
Mikið er gaman að lesa pistlana þína. Þér tekst auðveldlega að breyta viðhorfi manns til lífsins í austurlöndunum. Ég sá pistil í fréttablaðinu síðustu helgi og ákvað að lesa hann og síðan er ég búin að lesa marga af pistlunum á bloggsíðunni. Mig langar þó að vita eitt. Hvers vegna Íran? Bara að gamni eða hvað? Vonandi heldurðu áfram að skrifa, við fáum greinilega allt of einhæfar upplýsingar um þessi lönd:)
Kv, Inga Lind A

Nafnlaus sagði...

Langar til að hrósa þér fyrir pistlana í Fréttablaðinu, afar skemmtileg lesning!

Nafnlaus sagði...

Langar til að hrósa þér fyrir pistlana í Fréttablaðinu, afar skemmtileg lesning!

Nafnlaus sagði...

Hæ Hanna

Bara óska þér gleðilegt sumar og það er alltaf gaman að lesa pistlana þína. kveðja Hulda vinkona