Artí Teheran
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran
Í gær fór ég með Niki, leikkonuvinkonu minni, í eitt stærsta kvikmyndastúdíóið hér í borg. Við keyrðum í gegnum risa hlið og við veginn upp að húsinu stóðu há tré. Fyrir framan húsið var marmaraverönd með marmarasúlum og sundlaug í risa garðinum. Þetta var dæmigerð höll eins og venjulegt ríkt fólk bjó í á tímum keisarans. Eftir byltinguna tók stjórnin margar svona hallir í sína vörslu og núna hýsir þetta ótrúlega fallega hús kvikmyndabransann.
Þarna eru fullkomnustu klippiherbergin og hljóðstúdíóin í Íran. Íranar eru mikil kvikmyndaþjóð og írönskum kvikmyndagerðamönnum hefur gengið vel í alþjóðlega kvikmyndaheiminum, þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður heimafyrir, aðallega vegna stöðugrar ritskoðunar.
Ritskoðunin fer fram í þremur stigum. Fyrst þurfa leikstjórar að ritskoða sjálfa sig meðan á ferlinu stendur, þeir þurfa alltaf að hafa bak við eyrað hvað þeir mega og mega ekki og hversu langt þeir geta dansað á þeirri línu. Á öðru stigi skila þeir handritinu til ritskoðunarnefndar menningarráðuneytisins til að fá leyfi. Handritinu er yfirleitt breytt á því stigi. Þegar myndin er fullunnin fer hún aftur fyrir ritskoðunarnefndina sem gefur grænt ljós eða bendir á nokkrar senur sem eru ekki í lagi. Þá fer fram annað klippiferli til að fá græna ljósið. En þótt allt sé klippt í burtu sem gerð var athugasemd við fá ekki allar myndir leyfi. Þannig eru helstu leikstjórar Íran sem njóta alþjóðlegra vinsælda oftar en ekki bannaðir heimafyrir.
Í vikunni fór ég á bókaráðstefnu sem er sú stærsta í Mið-Austurlöndum. Þar voru allir mögulegir bókaútgefendur heimsins komnir saman en stjórnin fylgist vel með hvaða bækur eru í boði. Bækur eru oftar en ekki á bannlista. Það er fyndið að fletta í gegnum bækurnar í bókabúðunum og sjá límmiðana sem er búið að líma yfir einhverjar myndir. Sömuleiðis ritskoða íranskir höfundar sjálfa sig meðan þeir skrifa og bókin þarf að sleppa í gegnum ritskoðunarferlið áður en hún er gefin út. Um daginn hitti ég ungan rithöfund sem unnið hefur Bókmenntaverðlaun Írans. Hann sagði mér að bókaútgáfa hefði dregist saman eftir að nýi forsetinn tók við. Færri höfundar sleppa í gegn en áður.
Sama gildir um tónlistarbransann. Þessi ritskoðun fer fram á eiginlega öllum stigum samfélagsins. Bæði í listum og daglegu lífi. Af því að netið er svo heiftarlega ritskoðað eru endalaust margar vefsíður bannaðar hér. Hér eru vefsvæði eins og YouTube og MySpace kolólögleg fyrirbæri og að sjálfsögðu blokkeraðar. En í staðinn eiga Íranar líklega bestu hakkara í heimi. Tölvunördar í Íran þurfa að vera helmingi klárari til að komast framhjá öllum þessum hindrunum. Ef eitthvað er bannað þá er það helmingi meira spennandi. Þannig eru ýmsar leiðir sem unga fólkið finnur til að komast framhjá filterunum og tónlist er "dánlódað" grimmt af netinu. Íranskir krakkar hlusta á alla tónlist á mp3.
Annars byggja Íranar menningu sína að miklu leyti á listum og listasaga Persíu er mjög rík. Fólk vitnar ennþá í helstu ljóðskáldin Hafez, Ferdosi, Saadi, og Rumi í daglegu lífi. Hafez er á rokkstjörnustalli og sömuleiðis Rumi sem er mjög vinsæll meðal unga fólksins. Hvergi hef ég séð jafn mikið af ungum krökkum með SLR-myndavélar á öxlinni, og þá er ég ekki að tala um túrista því þeir eru sjaldséðir, heldur ungt kreatívt Teheran-fólk. Ljósmyndun, málun, kvikmyndagerð, hljóðfæraleikur og svo framvegis er eitthvað sem fólk gerir mjög náttúrulega hér, og eru algeng hobbí. Málaratrönur þykja sjálfsögð húsgögn og þótt þú sért læknir, verkfræðingur eða tölvunarfræðingur er mjög líklegt að listrænir hæfileikar blómstri heimafyrir.
Þrátt fyrir allt og allt er hér blómstrandi listalíf. Í vikunni fór ég á opnanir í stærstu listamiðstöðinni hér í borg sem heitir einfaldlega Artist´s House. Þar var mikið líf og alls konar listum blandað saman. Þar voru heilu fjölskyldurnar mættar og aldursbilið var frá ungabörnum með snuð til gamalmenna í hjólastólum. Artist´s House er á nokkrum hæðum og þar var myndlistarsýningum, bíósýningum, spuna, leikritum, ljósmyndasýningum og svo framvegis blandað saman. Þar voru bæði frægir listamenn og leikarar og venjulegt fólk komið saman til að njóta. Umhverfis húsið er stór garður með gosbrunnum þar sem fólk sat úti og drakk te langt fram á kvöld meðan listalífið iðaði innandyra jafnt sem utan. Það verður ekki annað sagt en að Teheran sé mjög lifandi borg og fólkið sömuleiðis.
sunnudagur, 13. maí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Frábærir pislar hjá þér Hanna mín. Langar reyndar líka mikið til að sjá myndir :)
Hilsen frá Århus Tóta og co
Skrifa ummæli