föstudagur, 25. maí 2007

Bless!

67 km til Írak
Hanna Björk Valsdóttir talar frá Teheran

Ég endaði dvöl mína hér í Teheran á að flýja stórborgina og eyddi síðustu helginni minni með nokkrum vinum í Suður-Íran í ríkasta héraðinu, nefnilega Khuzestan. Khuzestan er olíufylkið, flestir skýjagljúfrar í Teheran eru byggðir fyrir peninga sem koma þaðan. Samt sem áður er lókal fólkið fátækt. Peningarnir fara allir til borgarinnar. Það eru flug á 20 minútna fresti til Ahvaz og flugvélin var full af olíubransafólki.

Þegar ég labbaði útúr flugvélinni labbaði ég á vegg. Hitinn sem var yfir 40 gráður var nánast óbærilegur en svartur síðermaklæðnaður og slæða á höfðinu var samt ennþá skylda og svitinn rann eftir bakinu. Þegar við keyrðum í klukkutíma frá flugvellinum til Shush sem var áfangastaður okkar sáum við olíuna brenna út í loftið á staurunum sem gnæfðu upp úr jörðinni. Mjög tilkomumikið og ég fann næstum lyktina af peningunum í loftinu.

En Khuzestan er líka ríkasta landbúnaðarhérað Íran. Þar renna þrjár stórar ár í gegn og skapa úrvalsræktunarland. Þar vinna bændur hörðum höndum á hveitiökrum og sykurökrum, og allir mögulegir ávextir og grænmeti eru líka ræktaðir á svæðinu.

Vegna þess hversu ræktunarland er gott á svæðinu eru þarna elstu minjar um byggð í Íran að finna og þarna settust þeir fyrst að. Shush var eitt af mikilvægustu borgunum í fornu Persíu. 4000 ára fornminjar liggja alltum kring. Íran hefur aldrei hætt að koma mér á óvart og það var því mjög ánægjulegt að komast að því að í miðri eyðimörk í Shush sem engir túristar hafa heyrt talað um - kannski af því að það eru engin hótel og engir veitingastaðir, og fólksfjöldinn eru nokkrar hræður - eru einhverjar merkilegustu fornminjar Írans að finna.

Darius I byggði vetrarhöll þarna 521 fyrir Krist sem svipar til Persepolis. Höllin lifði af Alexander mikla en eftir árás Mongólanna hvarf höllin í sand og fannst ekki fyrr en á 19. öld þegar franskir fornleifafræðingar hófust handa við að grafa upp höllina. Íranski hlutinn í Louvre safninu í París kemur því allur frá þessu svæði. Þeir sem hafa séð minjarnar í Louvre geta farið til Shush og séð það sem var skilið eftir.

Héraðið liggur uppvið Írak og því vorum við með næturverði til að passa okkur á nóttunni. Í 67 km fjarlægð í Írak ríkir nefnilega algjör lögleysa og óstjórn. Bandaríkjaher þykist vera á staðnum en er aðallega í Baghdad þannig að restin af Írak er frekar afskiptalaust. Íbúarnir í Khuzestan eru af arabískum uppruna og þó að persnerska sé opinbera tungumálið þá er arabíska lókal tungumálið. Innfæddir gera ekki greinarmun á fólkinu hinum megin við landamærin. Þetta er sama fólkið, sama jörðin og í hugum þeirra eru engin landamæri. Frændur og frænkur búa hinum megin við línuna og þau ferðast á milli.

Saddam Hussein reyndi mikið að komast yfir fylkið í stríðinu við Íran 1980 - 1988 vegna auðlindanna sem finnast hér; olía og ræktunarland. Fylkið varð því verst úti í stríðinu og um hálf milljón Írana létu hér lífið við að vernda Khuzestan.

Á föstudeginum sátu konurnar í moskunni, sem er líka aðalfélagsmiðstöðin, og báðu, sungu, görguðu og böðuðu út höndum, þetta var eins og að labba inn í fuglabjarg og ég hef aldrei séð eins mikla karaktera. Gömlu konurnar með sólþurrkuð andlitin eins og krumpaðar sveskjur, þykk gleraugu með svörtum þykkum umgjörðum og svörtu klútana vafða um höfuðið “arab-style.”

Við gistum á sannkölluðu óðali, í gömlu stóru húsi með þjónustufólki, kokkum og einkabílstjórum. Og eins og alltaf var gestrisnin í hámarki og þetta fólk bar mig á höndum sér. Þetta var fullkominn endir á fullkominni dvöl í frábæru landi sem hættir ekki að koma á óvart. Fólkið og menningin er stórkostlegt. Hér hef ég eignast vini á mettíma og því var hálf dapurt að koma aftur til Teheran til að pakka ofan í tösku og kveðja.

Það veit svo sem enginn hvað gerist næst í íslamska lýðveldinu Íran sem heldur áfram að óhlýðnast Bandaríska stórveldinu og setja hömlur á eigin íbúa en ég vona innilega að landið verði látið í friði og að fólkið fái frið til að lifa sínu lífi. Ég kveð núna Íran í bili og þakka öllum sem lásu pistlana. Khodahafez!

Engin ummæli: